Nýji Airtex Pro jakkinn frá Airflo er hannaður fyrir versta veðrið.
Einungis bestu framleiðslu aðferðirnar og besta efnið var notað í nýju seríu af fatnaði hjá Airflo.
Nýja serían notar samsetningu af þremur lögum af efni sem gerir flíkina gríðarlega sterka.
Algjörlega vatshelt með góðri öndun með þremur D hringjum samtals og flipum til að hengja á allskonar tæki og tól.
Eiginleikar:
- 3ja laga.
- 100% vatnsheldur og andar mjög vel.
- Stillanleg hetta sem hægt að fela inni í kraganum (sjá mynd 1 og 2).
- Samskeyti límd og saumuð sem gerir þau gríðarlega sterk.
- Stillanleg stroff með frönskum rennilás til að halda vatninu úti.
- Flís kragi.
- Vatnsheldir rennilásar.
- Sterkir flipar til að hengja á klippur, tangir og fleira.
- Einn D hringur aftaná og tveir framaná.