Orvis Helios 3F
Flugustöngin Helios 3F var hönnuð með næmni og nákvæmni númer 1, 2 og 3 og hún slær í gegn þar í hvert skipti, þú finnur fyrir alminnstu hreyfingu sem snertir línuna án efa.
Orvis hannaði nýja tækni sem nær að einbeita orkunni sem byggist upp í kastinu á nákvæma tímapunktinum sem þú sleppir línunni, sem þýðir að ef þú hittir ekki á staðinn sem þú ætlaðist til, þá getur þú því miður ekki kennt stönginni um.
Helios 3F er aðeins öðruvísi frá 3D á þann hátt að hún er töluvert næmari, aðeins mýkri og er frábær í sutt – miðlungs löng köst, hún er betri fyrir flesta vegna þess að hún er mýkri þá er hún meira fyrirgefandi, 3D krefst meiri ákveðni í kasti.
3F höndlar að kasta í vindi mjög vel og þú verður ekki nærrum því jafn þreyttur í handlegg og öxl á við aðrar stangir eftir langan dag.
Helios 3, bæði F og D eru léttustu stangir sem Orvis hefur framleitt, ef það segir ekki nóg þá eru þær líka sterkustu stangir í sögu Orvis.
Aukinn styrkur í veggjum stangarinnar (sjá mynd „Hoop strength“ hér fyrir neðan) minnkar titring í stönginni þegar þú sleppir (sjá mynd 1A og 1B), þetta er tæknin sem gerir Helios-inn svona rosalega nákvæman.